Þann 11 júlí síðastliðinn lést skólasystir mín, vinkona og frænka úr Dölum. Ekki er annað hægt en að minnast hennar með bros á vör. Hæfileikar, gleði og grín skein í gegnum allt sem hún gerði og þetta viðhorf smitaði mikið út frá sér. Ég er stolt af því að hafa þekkt hana, þó ég hefði óskað þess að þekkja hana betur og lengur, og ég er viss um að hún blómstri enn hvar sem hún er stödd í dag. Þar situr hún eflaust með rauðvín í hönd og skrifar ljóð um heiminn handan.
Á svona tímum er gott að hugsa um nýtt líf. 12.júlí fæddist lítil prinsessa, bróðurdóttir mín, og ég er ástfangin alveg upp á nýtt, á nýjan hátt. Ástríður lifir áfram listinni og í hverjum þeim sem hana hefur hitt. Jafnvel líka í þeirri litlu.
Sjálfs
Ég
þetta orð
ég
hvað þýðir það?
herra Klár, örugglega eitthvað sem
þið hugsið
hver er ég?
söðulnefjaður, vambmikill, kerskinn
en um fram allt
hvers manns hugljúfi í hvívetna
eða hvað?
Er ég kannski ein af þessum
draumóramönnum?
Hvað sem því líður
þá svífur andi minn
yfir auðum gresjum hafdjúpanna
en þegar öllu er á botninn hvolft
er ég bara.
Ljóð eftir Ástríði Tómasdóttur og Birtu Þórhallsdóttur
- Fjöllistahópurinn Pjalla, komið úr ljóðabókinni Viltu Kjöt?